Ísland
1835
Ísland, farsældafrónog hagsælda, hrímhvíta móðir!Hvar er þín fornaldarfrægð,frelsið og manndáðin bezt?
Allt er í heiminum hverfult,og stund þíns fegursta framalýsir sem leiftur um nóttlangt fram á horfinni öld.
Landið var fagurt og fríttog fannhvítir jöklanna tindar,himinninn heiður og blár,hafið var skínandi bjart.
Þá komu feðurnir fræguog frjálsræðishetjurnar góðuaustan um hyldýpishaf,hingað í sælunnar reit.
Reistu sér byggðir og búí blómguðu dalanna skauti,ukust að íþrótt og frægð,undu svo glaðir við sitt.
Hátt á eldhrauni upp,þar sem ennþá Öxará rennurofan í Almannagjá,alþingið feðranna stóð.
Þar stóð hann Þorgeir á þingi,er við trúnni var tekið af lýði.Þar komu Gissur og Geir,Gunnar og Héðinn og Njáll.
Þá riðu hetjur um héruð,og skrautbúin skip fyrir landiflutu með fríðasta lið,færandi varninginn heim.
Það er svo bágt að standa í stað,og mönnunum munarannaðhvort aftur á bakellegar nokkuð á leið.
Hvað er þá orðið okkar starfí sex hundruð sumur?Höfum við gengið til góðsgötuna fram eftir veg?
Landið er fagurt og fríttog fannhvítir jöklanna tindar,himinninn heiður og blár,hafið er skínandi bjart.
En á eldhrauni upp,þar sem ennþá Öxará rennurofan í Almannagjá,alþing er horfið á braut.
Nú er hún Snorrabúð stekkur,og lyngið á Lögbergi helgablánar af berjum hvert ár,börnum og hröfnum að leik.
Ó, þér unglinga fjöldog Íslands fullorðnu synir!Svona er feðranna frægðfallin í gleymsku og dá!